Tjaldsvæði í Evrópu

Tjaldsvæði Evrópu

í Evrópu er mikið af fjölskylduvænum tjaldstæðum með góðri gæslu og auðvelt er að finna tjaldsvæði sem eru í háum gæðaflokki. Það má finna tjaldsvæði við sjávarsíðuna, í skóglendi, eða nágrenni þéttbýlis, svo það er úr mörgu að velja. Í útilegum geta börnin kynnst fjölda nýrra leikfélaga og þeir fullorðnu spjallað við aðra skemmtilega tjaldbúa.

Stjörnugjöf tjaldsvæða

Við hvetjum alla sem eru að fara að ferðast á eigin bíl og ætla að gista á tjaldsvæðum að kynna sér vel stjörnugjöf tjaldsvæða áður en gist er. Við mælum með því að skoða t.d. http://www.eurocampings.co.uk/en/europe/ en þar er hægt að skoða evrópukort og smella á borgir og staði og skoða þau tjaldsvæði sem eru í boði og hvaða stjörnugjöf tjaldsvæðin eru að fá. 5 stjörnu tjaldsvæðin eru td. oftast alveg glæsileg með öllum þægindum, klassa umhverfi og góðri gæslu.
Mörg þessara tjaldvæða leggja gríðarlega mikið upp úr allri umgjörð.

Fyrir þá sem ferðast á mótorhjólum

Í Danmörku er hægt að tjalda á um 700 stöðum fyrir litla sem enga þóknun. Á flestum stöðunum er aðgangur að rennandi vatni, þar eru eldstæði og salerni eða kamrar. Á þessum stöðum eru bílar og hjólhýsi ekki leyfð.