Um skipið

 

Nýja Norræna

Nýja Norröna er byggð jafnt sem farþega- og fragtskip Farþegahlutinn er af „cruise” staðli þannig að tíminn um borð verður eðlilegur hluti af fríi farþegans.

Gott sjóskip

Allt verður gert sem hægt er til að farþegar verði ekki ónáðaðir af óþarfa hávaða, titringi eða sjógangi. Líkanið af nýju Norrænu, sem var ca 8 m langt var ekki sjaldnar en 15 sinnum í tilraunatanki í Hamborg, þar sem það fékk mjög góða einkunn. Einkunnargjöf er á bilinu 1 – 10 og þeim mun lægri sem einkunnin er, því betra á skipið að vera í sjó. Líkanið af nýju farþegaferjunni fékk þegar til kom 1,8 í einkunn . Einungis fá skip fá svo góða umsögn.

Bjóðum upp á 4 manna klefa inn og klefa út, ásamt 2 manna klefa og Delux klefa

Klefarnir eru vel búnir. Svefnsófi er í öllum klefum, þ.e. sófi á daginn, rúm á nóttinni. Í öllum klefum er sjónvarp, wc og sturta, lokaður fataskápur, skrifborð, snyrtiborð og buxnapressa. Þess utan eru allir klefar sem snúa út með gluggum með góðu útsýni og kæliskáp.

Naust barinn

Góður bar með lifandi tónlist á kvöldin

Fríhöfn

Í Fríhöfninni er að finna mikið úrval af vinsælli merkjavöru. Vörurnar í verslun Norrænu er samkeppnishæf við aðrar fríhafnir í Evrópu.

Gott rými fyrir fragtina

Lögð er sérstök áhersla að hægt verði að flytja eins mikla fragt og mögulegt er með skipinu til og frá Færeyjum, þar sem mikil not eru fyrir rými fyrir fragt yfir vetrartímann. Nýja Norröna tekur bæði þrisvar sinnum fleiri bíla og þrisvar sinnum fleiri fragtvagna en núverandi Norröna. Afkastagetan er 3.250 tonn, þannig að með tvisvar sinnum tveimur ferðum yfir vikuna er hægt að flytja 2 x 2 x 3.250 = 13.000 tonn með skipinu í hverri viku yfir vetrarmánuðina. Þetta svarar til 400 flutningavagna 40 feta. Í þessu dæmi er reiknað með 50 fólksbílum í hverri ferð þar sem fjöldi farþega minnkar yfir vetrartímann. Að öðru leyti má reikna með mismunandi samansetningu af bílum og fragt um borð.

Daglegur rekstur

Nokkur hluti af skipinu verður lokaður yfir veturinn, þegar færri farþegar eru með. Um 118 manna áhöfn verður á háannatíma en fækkar í 20 – 25 manns yfir vetrartímann eftir því hve margir farþegar verða um borð hverju sinni. Í vélarúmi er ekki þörf á vöktum og er hægt að sinna því með 5 manns í staðinn fyrir 10 manns um borð núverandi Norrænu. Tæknilega er hægt að sigla skipinu með 14 manna áhöfn, þrír í brúnni, fimm í vélarrúmi og sex á dekki. Það kostar 93,9 milljónir Evra að byggja nýju Norrænu, eða uþb. 700 milljónir danskra króna.

Nútíma þægindi

Farþegarnir hafa gott tækifæri til að njóta ferðarinnar með nýju Norrænu, sem býður upp á sundlaug og líkamsrækt med sól og gufu og börnin fá stórt og glæsilegt leiksvæði. Um margt verður að velja í verslununum, sem verða þrefalt stærri en nú. Mikil áhersla verður lögð á að farþegarnir verði ánægðir. Þess vegna verða öll svæði farþega út við hliðar skipsins með útsýni, en þjónustusvæði, svo sem verslanir, lagerar, eldhús og býtibúr liggja við miðju skipsins.

Líkamsræktarsalur, sauna og sundlaug.

Á neðstu hæð er að finna líkamsræktarstað, sauna og sundlaug. Gott er að skella sér í ræktina á morgnana á meðan aðrir hvíla sig.

Tölvuleikjasalur

Fyrir yngstu kynslóðina þá erum við með tölvusal með alls kyns leiktækjum og spilakassa fyrir foreldrana.