Húsdýr

Flutningur á húsdýrum með Norrænu frá Íslandi

Við bendum fólki á að kynna sér reglur um flutninga á dýrum milli landa hjá næsta dýralækni.

Hundar og kettir

Um borð eru búr fyrir hunda og ketti, þau eru staðsett á dekki og eigendur geta ávallt nálgast dýrin, hreyft þau og fóðrað. Panta þarf sérstaklega flutning fyrirfram og kostar kr. 15.000 að flytja hund eða kött með Norrænu.

Dýrabúr

Búr á dekki Norrænu.

Innflutningur á dýrum til Íslands með Norrænu er bannaður
Um innflutning dýra gilda lög nr. 54/1990 og sbr. 2.gr þessara laga er óheimilt að flytja inn "hvers konar dýr, tamin eða villt, svo og erfðaefni þeirra", ennfremur segir síðar í sömu grein laganna : "Dýrum sem flutt eru inn án heimildar skal tafarlaust lógað og skrokkum eytt svo eigi stafi hætta af".

Sérstök reglugerð hefur síðan verið sett um innflutning gæludýra, nr. 935/2004, þar sem skýrt er tekið fram að einungis er heimilt að flytja lifandi gæludýr til Íslands með flugi og Keflavíkurflugvöllur er eina löggilta innflutningshöfnin hér á landi. Athuga reglugerð um breytingu á fyrrnefndri reglugerð, sú reglugerð er nr. 817/2005.
Enn ein reglugerðin er síðan til um einangrunarstöðvar og búnað þeirra, nr.432/2003