Gisting í Norrænu

Gisting í Norrænu

Útklefar: Í öllum útklefum er gluggi svo maður hefur útsýni yfir hafið meðan siglt er. Að auki er kæliskápur sem gefur möguleika á að hafa með sér mat og drykk í klefann.
A4-útklefi: Í klefanum eru fjögur rúm. Neðri rúmin er hægt að breyta í sófa. Sængurföt og handklæði fyrir 4 eru þar. Fataskápur, buxnapressa, snyrting með sturtu er í klefanum, einnig er hárblásari og innstunga fyrir rakvél sem er 220 volt, einnig er innstunga fyrir 240 volt. Sjónvarp með gerfihnattarásum er í öllum klefum.

 


A3-útklefi: Í klefanum eru fjögur rúm. Neðri rúmin er hægt að breyta í sófa. Sængurföt og handklæði fyrir 4 eru þar. Fataskápur, buxnapressa, snyrting með sturtu er í klefanum, einnig er hárblásari og innstunga fyrir rakvél sem er 220 volt, einnig er innstunga fyrir 240 volt. Sjónvarp með gerfihnattarásum er í öllum klefum.

 


A2-útklefi: Í klefanum eru tvö rúm, neðra og efra rúm. Neðri rúminu er hægt að breyta í sófa. Sængurföt og handklæði fyrir 2 eru þar. Fataskápur, buxnapressa, snyrting með sturtu er í klefanum, einnig er hárblásari og innstunga fyrir rakvél sem er 220 volt, einnig er innstunga fyrir 240 volt. Sjónvarp með gerfihnattarásum er í öllum klefum.
B4 og B3 innklefar: Eru útbúnir á sama hátt nema þeir hafa ekki glugga og kæliskáp.


Klefar fyrir hreyfihamlaða: Um borð eru klefar fyrir hreyfihamlaða og eru þeir innréttaðir með þarfir þeyrra í huga. Þetta eru 4m klefar með glugga, mjög rúmgóðir, hægt er að keyra hjólastól í gegnum dyrnar. Í þeim er staðlaður útbúnaður fyrir hreyfihamlaða. Að öðru leiti eru þeir útbúnir á sama hátt og A4-útklefar.

 

 

Deluxe-herbergi: Hér eru meiri gæði og pláss, er búið þægilegri setustofu, tvíbreiðu rúmi, tveim gluggum ásamt fataskáp, buxnapressu, sjónvarpi, kæliskáp og fleiru.

 

 

 

Svefnpokapláss: Er ódýrasti gistimátinn um borð. Þar eru kojur með dýnu, þú þarft sjálfur að koma með svefnpoka eða önnur sængurföt. Hægt er að leigja teppi um borð fyrir DKK 50 á mann. Ekki er kynjaskipt í svefnpokaplássinu. Ekki er hægt að læsa inni farangur þar. Svefnpokaplássið er á neðsta dekki, þar er góð snyrtiaðstaða og sturtur. Kortið sem þú færð þegar þú ferð um borð er lykill að svefnpokaplássinu. Á klefunum eru ólæstar vængjadyr.