Afþreying um borð

Bíósalur

Nýr bíósalur var tekinn í notkun síðasta sumar. Salurinn tekur 25 manns. Þar eru sýndar bíómyndir á hverjum degi og hefur þessi viðbót við afþreyingarúrvalið um borð mælst vel fyrir.
Aðgöngumiðinn kostar DKK 50 á mann.

Sundlaug og líkamsrækt

Um borð í Norrænu er líkamsrækt og lítil sundlaug, heitir pottar og ljósabekkir. Aðeins þarf að greiða fyrir aðgang að ljósabekkjum en frítt í sundlaug, líkamsrækt og heitu pottana.

Gerfihnattarsjónvarp í öllum klefum

Í öllum klefum er gerfihnattarsjónvap með góðu úrvali af rásum.

Nettenging

Hægt er að komast í nettengingu um borð gegn vægu gjaldi.

Leiksvæði fyrir börn

Ágætt leiksvæði er í Norrænu þar sem börnin geta skemmt sér.

Útibar og sólbaðsaðstaða

Á efsta dekki er bar og aðstaða til að sitja, njóta fersk sjávarlofts og útiveru.