Hlaðborð Buffét

Buffét veitingastaðurinn býður uppá morgunverðarhlaðborð, hádegis og kvöldverðarhlaðborð með miklu úrvali og þú getur borðað eins og þú vilt. Við mælum með því að panta matinn fyrirfram á söluskrifstofu okkar, bæði til að fá afslátt og svo til að fá borð því staðurinn er ótrúlega vinsæll.

Lestu meira

Simmer Dim

Njótið kvöldsins á Simmer Dim veitingastaðnum, rómantískur veitingastaður með frábæran mat. Í a la carte er góður matseðill með forréttum, aðalréttum og eftirréttum. A la carte er aðeins opið á kvöldin. Hægt er að panta borð á veitingastöðunum eftir kl. 17:00 á daginn.

Lestu meira

Kaffitería og barnaland

Fjölskyldan fer oft kaffiteríuna á ferð sinni með Norrænu vegna þess að þar er bæði gott að vera, góðar veitingar og svo er barnaland á sama stað. Kaffiterían er opin allan daginn. Þar er hægt að kaupa morgunmat, heitan hádegismat og kvöldmat, kaffi, te, bakkelsi og drykkjarvörur.

Lestu meira

Barnastarf

Á daginn geta krakkarnir fengið andlitsmálningu og farið í leiki með starfsfólki skipsinns. Þetta finnst krökkunum alveg ótrúlega skemmtilegt og mikið fjör sem þessu fylgir. Þegar það kemur að minningum úr ferðinni segja krakkarnir oft að Norræna standi upp úr.

Lestu meira

Líkamsrækt

Fyrir þá sem vilja fara í ræktina þá bjóðum við upp á fína aðstöðu þar sem fólk getur þjálfað sig og fengið útrás, og skellt sér í sauna eða sund á eftir. Þeir hörðustu í ræktinni þurfa ekki að sleppa degi og geta notið sín á fyrstu hæð. 

Lestu meira

Bíósalur

Sýnum margar af nýjustu bíómyndunum alla daga. Erum með 3-4 myndir til að velja úr daglega sem höfða til allra aldurshópa. Hægt er að kaua miðana í afgreiðslunni. Miðaverð er DKK 55,- pr. mann. Salurinn er með 23 sætum og góðu hljóðkerfi. 

Lestu meira

Hlaðborð

Buffét veitingastaðurinn býður uppá morgunverðarhlaðborð, hádegis og kvöldverðarhlaðborð með miklu úrvali og þú getur borð að eins og þú vilt. Við mælum með því að panta matinn fyrirfram á söluskrifstofu, bæði til að fá afslátt og svo til að fá borð því staðurinn er ótrúlega vinsæll.

Lestu meira

Bar og veitingar

Þú getur notið kvöldsins á einhverjum af okkar frábæru veitingahúsum og börum. Við bjóðum uppá friðsamlegt umhverfi þar sem hægt er að ræða saman við lága tónlist og svo er hægt að fara á Naustbarinn og hlusta á lifandi tónlist langt fram eftir kvöldi. Svo má ekki gleyma því að fara uppá þak í glerskálann og á barinn þar og njóta útsýnisins.

Lestu meira

Fríhöfnin

Um borð í Norröna er ný og glæsileg fríhöfn.  Þar er úrval hefðbundins fríhafnarvarnings sem og gott úrval af  vörum frá færeyskum og íslenskum hönnuðum.  Í fríhöfnininni fæst úrval merkjavöru frá fjölmörgum færeyskum fataframleiðendum og einnig er þar á boðstólum handverk og sérunnar heilsuvörur frá Danmörku, Færeyjum og Íslandi.

Lestu meira

Útsýnispallar

Norröna (Norræna) er byggð jafnt sem farþega- og fragtskip. Farþegahlutinn er af “cruise” staðli þannig að tíminn um borð verður eðlilegur hluti af fríi farþegans. Þegar þú siglir með Norrænu þá er gott að fara upp á dekk og njóta útsýnisins sem er í senn stórbrotið og fallegt.

Lestu meira

Klefar

Klefarnir eru vel búnir. Svefnsófi er í öllum klefum, þ.e. sófi á daginn, rúm á nóttinni. Í öllum klefum er sjónvarp, wc og sturta, lokaður fataskápur, skrifborð, snyrtiborð og buxnapressa. Þess utan eru allir klefar sem snúa út með gluggum með góðu útsýni og kæliskáp.

Lestu meira

Setustofa

arþegarnir hafa gott tækifæri til að njóta ferðarinnar með Norrænu. Hægt er að tylla sér í kaffiteríunni eða í setustofunni ásamt ótal öðrum stöðum í skipinu. Á Naustbar er hægt að hlusta á lifandi tónlist á kvöldin, spjalla saman eða spila og notalegheit alla leið á áfangastað.

Lestu meira

Fríhöfn

Fríhöfnin um borð í Norrænu

Um borð í Norröna er ný og glæsileg fríhöfn. Þar er úrval hefðbundins fríhafnarvarnings sem og gott úrval af vörum frá færeyskum og íslenskum hönnuðum. Í fríhöfnininni fæst úrval merkjavöru frá fjölmörgum færeyskum fataframleiðendum og einnig er þar á boðstólum handverk og sérunnar heilsuvörur frá Danmörku, Færeyjum og Íslandi.
Snyrtivörudeildin hefur verið stækkuð og endurnýjuð. Þar er boðið upp á ýmsar nýungar auk varnings frá helstu snyrtivöruframleiðendum heims og húðvörur frá íslenskum og færeyskum framleiðendum. Fríhöfnin í Norrönu býður einnig gott úrval af víni og sælgæti. Fríhöfnin er glæsileg og hluti af upplifuninni að sigla er að fara og versla í fallegu umhverfi. 
Um borð í Norrænu er hægt að greiða með dönskum krónum, evrum og kreditkortum svo sem Visa og Mastercard. Komið og skoðið - úrvalið er mikið og verðið sanngjarnt.